Samskip - Fréttir

Mikill vöxtur í starfsemi Samskipa í Asíu

-þriðja skrifstofan opnuð á mánudag og tvær til viðbótar á næsta ári

29.10.2004

Mikill vöxtur er í starfsemi Samskipa í Asíu og verður þriðja skrifstofa félagsins þar opnuð á mánudag 1. nóvember, í Dalian í Kína. Fyrir eru Samskip með skrifstofu í Pusan í Suður-Kóreu og Qingdao í Kína. Á næsta ári bætast við tvær skrifstofur Samskipa í Asíu, í Tælandi og Víetnam. 

Aðalstarfsemi skrifstofanna í Asíu er flutningur á frystum fiski og hefur magnið aukist stöðugt frá því fyrsta skrifstofan var opnuð í Pusan í febrúar á síðasta ári. „Markmið okkar er að verða leiðandi í heiminum í flutningi og tengdri þjónustu við sjávarútveginn,“ segir Einar Þór Guðjónsson, framkvæmdastjóri frysti- og kæliflutningasviðs Samskipa.  

Eins og Qingdao er Dalian miðstöð fiskvinnslu í Kína og hefur Rossi Chen verið ráðinn yfirmaður skrifstofunnar þar. Hefur hann unnið við sjávarútveg í Dalian sl. 10 ár og hefur víðtæka þekkingu á þeim markaði. Til að byrja með verða þrír starfsmenn á skrifstofunni í Dalian, fjórir starfa á skrifstofunni í Qingdao og sjö í Pusan, þannig að samtals eru starfsmenn Samskipa í Asíu nú 14 talsins. 

Samskip reka nú 35 skrifstofur í 15 löndum auk þess sem starfræktar eru umboðsskrifstofur um heim allan.  Hjá Samskipum starfa nú um 850 manns þar af um 200 manns á erlendum vettvangi.  

Heimilisfang nýju skrifstofunnar í Kína er:

Samskip LTD Dalian

Rainbow Building No. 23 Renmin Road

Room 1203, Zhongshan District

Dalian, China

Tel: 86-411-8256-2120

Fax: 86-411-8256-2140  

Nánari upplýsingar veitir:

Einar Þór Guðjónsson, framkvæmdastjóri frysti- og kæliflutningasviðs Samskipa, í síma +31 10 428 5057

Netfang: einar@samskip.is



Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica