Samskip - Fréttir
Nýr svæðisstjóri í Svíþjóð
Birna Ödefors hefur verið ráðin svæðisstjóri Samskipa í Svíþjóð og tekur hún til starfa 1. janúar 2005.
Birna er fædd í Danmörku en alin upp í Svíþjóð og starfaði hjá Maersk Sealand and Logistics. sem framkvæmdastjóri sölusviðs í Danmörku og Svíþjóð, áður en hún réðst til Samskipa.
Hún leysir af hólmi Ólaf Jóhannsson, sem verið hefur svæðisstjóri Samskipa í Svíþjóð og Noregi undanfarin ár. Hann mun einbeita sér að rekstri Samskipa í Noregi en mikill vöxtur hefur verið í starfsemi félagsins þar undanfarið.
Myntatexti:
Birna Ödefors.

