Góð útkoma Samskipa í þjónustukönnun IMG
Persónuleg þjónusta, sveigjanleiki, öryggi, traust og afgreiðsluhraði skipta viðskipavini Samskipa mestu og telja þeir félagið standa sig vel á þessum sviðum samkvæmt nýrri þjónustukönnun IMG.
Í könnuninni, sem framkvæmd var dagana 19. og 20. október sl., var leitað til svokallaða rýnihópa, 6-10 manna umræðuhópa skipaða viðskiptavinum, og reynt að greina þarfir þeirra og viðhorf til þjónustunnar sem boðið er upp á hjá Samskipum (innflutningur-útflutningur), Landflutningum og Jónum Transport. Var spurt um viðhorf þeirra til þjónustunnar, hver þekking þátttakenda væri á þjónustunni, hvaða þjónustuþættir skiptu mestu og hvernig þátttakendum hefði líkað sú þjónusta sem þeir hefðu nýtt sér.
"Helstu niðurstöður könnunarinnar eru þær að persónuleg þjónusta, sveigjanleiki, öryggi, traust og afgreiðsluhraði skipta viðskiptavinina mestu máli. Jafnframt kom fram að við erum að standa okkur vel í þessum efnum þó svo að alltaf megi gera betur," segir Anna Guðný Aradóttir, markaðsstjóri Samskipa.
Hún segir að allar athugasemdir og ábendingar sem fram komu í rýnihópunum séu vel þegnar, enda könnunin hluti af þeirri viðleitni félagsins að bæta stöðugt þjónustuna við viðskiptavinina og reyna að koma enn betur til móts við þarfir þeirra. "Ég vil bara nota tækifærið fyrir hönd Samskipa og þakka kærlega öllum þeim sem gáfu sér tíma til að taka þátt í þessu með okkur. Við munum sannarlega nýta okkur þessar upplýsingar á næstunni til að gera góða þjónustu enn betri."

