Samskip - Fréttir
Kór - jólaboð

Vel heppnað jólaboð

30.11.2004

Það ríkti glaumur og gleði í jólaboði Samskipa sem fram fór með pompi og prakt á Kaffi Reykjavík sl. föstudag. Fullt var út úr dyrum eins og venjulega, enda markar Samskipaboðið orðið upphaf hátíðarhaldanna hjá mörgum.

Sannkölluð jólastemning sveif yfir þegar gesti bara að garði því á móti þeim tók heill kvennakór með gullfallegum jólalögum. Innandyra svignuðu borð undir kræsingum, bæði mat og drukk, sem gestir gerðu góð skil, í takt við ljúfa tóna Kristjáns Guðmundssonar á neðri hæð og Árna Scheving og félaga á efri hæð. Sannaðist hér enn og aftur það sem menn vissu svo sum fyrir; að Samskipamönnum er fleira til lista lagt en að flytja vörur heimshornanna á milli. Þótti boðið takast með eindæmum vel og sérstaklega skemmtilegan svip setti á það að þessu sinni það uppátæki Samskipamanna að vera með blikkandi jólaskreytingu í barminum.

Gestir - jólaboðJólaboð

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica