Samskip - Fréttir
Mikil umsvif hjá Samskipum vegna starfsmannaþorps Fjarðaáls
Mikil umsvif eru hjá Samskipum vegna vöruflutninga fyrir starfsmannaþorp Fjarðaáls-Alcoa. Hefur uppskipun staðið yfir á Reyðarfirði í dag og í gær úr einu stærsta vöruflutningaskipi sem þar hefur lagst við bryggju.
Skipið, sem heitir Enchanter, er 138 metra langt og 23 metra breitt og burðargeta þess er tæplega 13 þúsund tonn. Það kom til hafnar á Reyðarfirði í gær með 60 hús fyrir vinnubúðir Fjarðaáls-Alcoa og lestuð voru í Houston í Bandaríkjunum þann 23. nóvember sl. Uppskipun hófst strax í gær og lýkur nú síðdegis og heldur Enchanter þá áfram til Rotterdam í Hollandi. Þaðan er einnig leiguskipið Simone J væntanlegt til Reyðarfjarðar í kvöld með 22 vinnubúðaeiningar frá Búdapest í Ungverjalandi, þannig að alls eru húsin 82 talsins sem Samskip flytja til Reyðarfjarðar í þessari viku vegna starfsmannaþorps Fjarðaáls-Alcoa.
Flutningar Samskipa á vinnubúðaeiningum fyrir starfsmannaþorpið hófust í ágúst sl., þegar fyrsti farmurinn kom frá Búdapest, og hafa þeir gengið mjög vel. Alls er um að ræða flutninga á yfir 900 vinnubúðaeiningum, bæði skrifstofum og svefnskálum, ásamt ýmiskonar fylgihlutum.

