Samskip - Fréttir

Breytingar hjá Samskipum

Óskar Óskarsson ráðinn framkvæmdastjóri innanlandssviðs

14.12.2004

Í kjölfar vaxandi starfsemi innanlandssviðs Samskipa hafa verið gerðar skipulagsbreytingar hjá félaginu og fjölgað í framkvæmdastjórn þess.  

Ný staða, framkvæmdastóri innanlandssviðs Samskipa, hefur verið sett á laggirnar til að styrkja starfsemi innanlandssviðs enn frekar og gera stjórnun þjónustunnar við viðskiptavini enn markvissari. Í kjölfarið hefur verið gengið frá ráðningu Óskars Óskarssonar í starfið.  

Innanlandssvið Samskipa sér um rekstur landflutningakerfis undir vörumerkinu Landflutningar - Samskip.  Landflutningar - Samskip sjá um áætlunarakstur til 75 áfangastaða á landsbyggðinni og eru með afgreiðslur á 42 stöðum á landinu.  Undir starfsemina heyrir allur akstur innanlands, rekstur afgreiðslustaða á landsbyggðinni svo og afgreiðslur fyrir farþegaferjurnar Herjólf og Sæfara.  Starfsmenn innanlandssviðs eru um 200 talsins.

Óskar Óskarsson hefur starfað við flutninga frá unga aldri og má segja að hann hafi fæðst inn í greinina því faðir hans, Óskar Jónsson, rak um árabil flutningafyrirtæki á Dalvík. Óskar hefur starfað hjá Samskipum frá árinu 1995, fyrst sem framkvæmdastjóri Flutningamiðstöðvar Norðurlands, síðar á aðalskrifstofu félagsins og á skrifstofu félagsins í Bandaríkjunum. Undanfarin fjögur ár hefur Óskar gengt stöðu deildarstjóra innanlandsdeildar félagsins, Landflutninga-Samskipa.  

Óskar er fæddur árið 1963 og kvæntur Lilju Björk Ólafsdóttur og eiga þau 3 börn.



Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica