Samskip - Fréttir

Samskip flytja og fá nýtt símanúmer

28.12.2004

Við hjá Samskipum opnum í dag nýjar og glæsilegar höfuðstöðvar við Kjalarvog í Reykjavík. Jafnframt hefur félagið fengið nýtt símanúmer, 458 8000.

Nýju höfuðstöðvarnar hýsa aðalskrifstofu Samskipa á Íslandi, Landflutninga - Samskip og Jóna Transport. Einnig Vörumiðstöð Samskipa, sem er sú stærsta og fullkomnasta á landinu. Þar er aðstaða fyrir innflutning, tollvörugeymslu, vöruhýsingu, móttöku búslóða og innanlandsflutninga ásamt vörudreifingu. Geymslurýmin eru sérútbúin fyrir þurrvöru, olíuvöru, efnavöru, kælivöru, frystivöru og smávöru.

Landflutningar flytja 30.desember í nýja húsið við Kjalarvog og hefst vörumóttaka þar strax en Jónar Transport flytja 13.janúar nk.

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica