Samskip - Fréttir

Tilkynning frá Samskipum

Gjaldtaka vegna laga um siglingavernd

11.1.2005

Samskip hafa ákveðið í samræmi við lög um siglingavernd nr. 50/2004 og ISPS-kóða SOLAS-samþykktarinnar, að leggja á öryggisgjald til að mæta kostnaði félagsins vegna skipa- og hafnaverndar. Öryggisgjald leggst á inn- og útflutning til og frá Íslandi.

Þessu öryggisgjaldi er ætlað að standa undir þeim miklu fjárfestingum og auknum rekstrarkostnaði sem Samskip hafa þurft að ráðast í vegna þessara laga.

Hafnir og hafnarsamlög munu sjá um að framfylgja gjaldtöku vegna farmverndarhluta laganna.

Nánari upplýsingar um siglingavernd er að finna á heimasíðu Siglingastofnunar www.sigling.is og heimasíðu Faxaflóahafna www.reykjavikurhofn.is

Gjaldtaka Samskipa mun taka gildi 21. janúar 2005.

        
Öryggisgjald  
Gámur 20ft/40ft  EUR 32,8
Tonn  EUR 2.6
M3  EUR 1,15
Farmverndaryfirlýsing kr. 91 pr.tonn
Hafnarvernd 17 % álag á vörugjöld - lagt á af hafnaryfirvöldum
 Virðingarfyllst,
Samskip hf

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica