Forsætisráðherra hringdi inn starfsemi í nýjum höfuðstöðvum Samskipa
Nýjar höfuðstöðvar Samskipa voru formlega teknar í notkun sl. laugardag af Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra í glæsilegri veislu sem félagið efndi til af þessu tilefni. Klingdi forsætisráðherra skipsklukku til marks um að starfsemin væri formlega hafin í nýbyggingu Samskipa við Kjalarvog við góðar undirtektir um 900 gesta.
Óskaði forsætisráðherra bæði fyrtækinu og starfsmönnum velfarnaðar og sagði Samskip gott dæmi um þau íslensku fyrirtæki sem væru að eflast og dafna með markvissri útrás á erlenda markaði.
Ólafur Ólafsson stjórnarformaður Samskipa gerði stuttlega grein fyrir byggingasögu hússins og sagði að með því hefði langþráður draumur ræst. "En þessi draumur er ekki sá eini sem er að rætast hjá okkur því tvö ný gámaskip eru nú í smíðum fyrir félagið og við tökum við því fyrra strax um næstu helgi," sagði Ólafur og bætti við að nýliðið ár væri það langbesta í sögu félagsins. "Það hefur allt gengið upp, bæði heima og erlendis og á þessari stundu er mér efst í huga þakklæti til ykkar, viðskiptavina okkar og starfsmanna." Hvatti svo stjórnarformaðurinn gesti til að njóta skemmtiatriða og veitinga sem í boði væru og "taka það með trukki," eins og gjarnan væri sagt hjá Samskipum.
Og skemmtiatriðin voru ekki af verri endanum. Meðal þeirra sem tróðu upp voru Sálin hans Jóns míns og Brimkló, með Björgin Halldórsson í broddi fylkingar og gestasöngvarana Siggu Beinteins, Diddú og Ragga Bjarna. Þá raulaði veislustjórinn, Jón "góði" Ólafsson, fyrir gesti og reitti af sér brandara en mest á óvart kom án efa "Melabandið" svokallaða.
Var undrunar- og ánægjusvipurinn á gestunum óborganlegur þegar Sinfóníuhljómsveit Íslands birtist á sviðinu og ekki minnkaði stemningin þegar Diddú bættist í hópinn.
Var almenn ánægja meðal gesta með samkvæmið og greinilegt að gestgjöfunum hafði tekist ætlunarverk sitt; að skemmta fólki og koma á óvart með eftirminnilegum hætti!
Hátt í helmingur allra starfsmanna Samskipa með aðstöðu í nýja húsinu
Nær öll starfsemi Samskipa höfuðborgarsvæðinu, þar á meðal Landflutningar og dótturfélagið Jónar Transport, er nú saman komin undir einu þaki í nýbyggingunni við Kjalarvog.
"Flutningarnir hafa þjappað okkur saman og ég er sannfærður um að við munum geta þjónustað viðskiptavini okkar enn betur en verið hefur því öll okkar þjónusta, sem áður var starfrækt á fimm stöðum, hefur verið samþættuð hér í nýja húsinu með tilheyrandi hagræðingu fyrir bæði viðskiptavini og starfsmenn," segir Knútur G. Hauksson, annar forstjóra Samskipa.
Hefur bygging hússins gengið mjög hratt því aðeins eru um 16 mánuðir liðnir frá því á þriðja hundrað starfsmenn tóku fyrstu skóflustunguna, þann 19. ágúst 2003, en fyrsti hluti byggingarinnar var tilbúinn strax í október 2004. Þá þegar var hafist handa við að flytja Vörumiðstöð Samskipa í húsið og var fyrsta vörusendingin úr nýja húsinu afgreidd formlega aðeins tveimur vikum síðar. Aðalskrifstofur félagsins voru fluttar í húsið rétt fyrir áramót ásamt starfsemi Landflutninga og fyrir nokkrum dögunum slógust svo starfsmenn dótturfélagsins Jóna Transports í hópinn. Lætur nærri að um 500 af 950 starfsmönnum Samskipa um heim allan starfi eða hafa aðstöðu í nýja húsinu við Kjalarvog.
Rúmar ríflega tvo fótboltavelli!
Heildargólfflötur nýja hússins, sem er stálgrindarbygging á þremur hæðum, er hartnær 28.000 m² en grunnflötur þess er um 17.500 m², og gæti vel rúmað tvo knattspyrnuvelli með tilheyrandi áhorfendastúkum. Húsið er um 240 metra langt og 70 metra breitt og mesta lofthæð er um 17 metrar. Stærstur hluti þess fer undir Vörumiðstöðina, sem staðsett er á fyrstu hæð, með tilheyrandi aðstöðu fyrir tollgæslu, ásamt móttöku. Jónar Transport eru með skrifstofur á annarri hæð og á þeirri þriðju eru skrifstofur Samskipa og smávöruloft. Er öll aðstaða fyrir stafsmenn í nýja húsinu til mikillar fyrirmyndar, t.d. er fullkomin bað- og búningsaðstaða fyrir ríflega 200 manns, tveir íþróttasalir og sérstök leikherbergi, ætluð börnum starfsmanna sem þeir geta þurft að taka með sér tímabundið í vinnuna.
Byggingarkostnaður innan skekkjumarka
Byggingarkostnaður var áætlaður um 2,4 milljarðar króna með viðbótum og var samið við Íslandsbanka um fjármögnun verkefnisins. Hefur kostnaðaráætlun staðist í öllum meginatriðuum.
Ístak annaðist allar framkvæmdir og sá um mestalla hönnun hússins, sem fram fór nánast um leið og það var reist því upphaflega var t.d. ekki gert ráð fyrir því að höfuðstöðvar félagsins yrðu þar til húsa. Rafmiðlun sá um rafmagnshönnun og VGK annaðist hönnun lagna- og loftræstingar. Arkitektar að húsinu og öðrum mannvirkjum er arkitektastofan Arkís en Landmótun hannaði lóðina. Verkefnastjórnun og eftirlit var hjá Línuhönnun, Lagnatækni og Raftæknistofunni.
Samhliða byggingu nýja hússins var reist þvottastöð fyrir flutningabíla, byggt nýtt hliðhús og athafnasvæði félagsins girt af vegna nýrra laga um siglingavernd. Einnig var byggð lyftarageymsla og útbúið afgirt geymslusvæði.
Nokkrar tölulegar staðreyndir um nýbyggingu Samskipa
Húsið er 70 m breitt og 240 m langt (um þreföld stærð fyrrverandi húsnæðis Samskipa)
Mesta lofthæð 17 m
Frystiklefar eru rúmlega 1.400 m2 og kæliklefar um 1.900 m2
Sérgeymsla fyrir olíuvörur er um 1.200 m2
Heildargeymslupláss:
23.400 brettapláss
9.100 hillumetrar
800 kassaflæðirekkar
Stórar bílgengar hurðir eru 45
Innihurðir eru 350
Fundarsalir eru 9
Kaffibarir eða smáeldhús eru 15
Sófaherbergi fyrir smáfundi eru 4
Matsalir eru tveirr, annar um 260 m2 og hinn um 70 m2
Kennslustofa
Fullkomin bað- og búningsaðstaða fyrir 210 manns
Tveir íþróttasalir, samtals um 125 m2
Um 515 tonn af stáli fóru í húsið og nærri 7.000 m³ af steypu
Þakklæðning er alls um 18.000 m³ og um 800 m² af gleri eru í húsinu (gluggar og glerveggur)


