Samskip - Fréttir
MJ2J5802

Nýtt Arnarfell í þjónustu Samskipa

22.1.2005

Merk tímamót urðu í sögu Samskipa í dag þegar stjórnendur félagsins veittu viðtöku fyrra kaupskipinu af tveimur sem þýska skipasmíðastöðin JJ Sietas hefur smíðað fyrir félagið. Hlaut það nafnið Arnarfell og leysir af hólmi eldra skip félagsins með sama nafni á siglingaleiðinni milli Íslands og Evrópu. Kostnaður við smíði skipsins er um 1,7 milljarður íslenskra króna.

Það var Ingibjörg Kristjánsdóttir, eiginkona Ólafs Ólafssonar, stjórnarformanns Samskipa, sem gaf nýja skipinu nafn við hátíðlega athöfn í Hamborgarhöfn í dag að viðstöddum æðstu stjórnendum félagsins, Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra og fleiri góðum gestum. Nærri áratugur er nú liðinn frá því Íslendingar veittu síðast viðtöku kaupfari, sem er sérhannað og smíðað eftir þeirra þörfum, og mun nýja Arnarfellið vera fjórða skipið á aldarfjórðungi sem er sérstaklega smíðað fyrir íslenskt skipafélag.

MJ2J5570

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 







Myndatexti: Með Ingibjörgu á myndinni er forstjóri skipasmíðastöðvarinnar, Hinrich J. Sietas

MJ2J5572MJ2J5575

Fyrsta áætlunarferð nýja Arnarfellsins verður frá Rotterdam strax eftir helgi, 25. janúar og er það væntanlegt til hafnar í Reykjavík 1. febrúar. Það er umtalsvert stærra en gamla Arnarfellið og getur flutt ríflega 200 gámaeiningum meira í hverri ferð, eða alls 908 tuttugu feta gáma. Burðargetan er allt að 11.143 tonn, það er 138 metra langt, 21 metra breitt og gengur allt að 18,4 sjómílur á klst.

Nýja Arnarfellið er skráð í Færeyjum en áhöfnin er íslensk, alls 11 manns. Er allur aðbúnaður þeirra eins og best verður á kosið, eins manns herbergi með sérsnyrtingu er fyrir alla í áhöfninni. Alls eru vistaverur fyrir 15 manns um borð.

Seinna skipið sem er verið að smíða fyrir Samskip í Hamborg verður afhent í lok febrúarmánaðar. Voru skipin sérhönnuð fyrir Samskip og náðist samkomulag við JJ Sietas um smíði þeirra eftir ítarlegan verðsamanburð. Kostnaður við hvort skip er 21 milljón evra (um 1,7 milljarðar ISK) og er verkefnið fjármagnað af HSH Nordbank, sem leigir Samskipum þau til minnst sjö ára.

Með tilkomu nýju skipanna er lokið umfangsmiklu endurnýjunarferli hjá Samskipum þar sem skemmt er að minnast vígslu nýrra höfuðstöðva félagsins á Íslandi fyrir réttri viku. Einnig hefur átt sér stað uppstokkun á rekstri félagsins erlendis á undanförnum misserum til að skjóta enn styrkari stoðum undir útrás félagsins á erlendri grund.

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica