Samskip - Fréttir
Varberg aftur viðkomuhöfn Samskipa í Svíþjóð
Frá og með 31.janúar taka Samskip aftur upp viðkomu í Varberg í Svíþjóð, en um nokkurra vikna skeið var viðkoma í Halmstad.
Varberg hefur verið viðkomuhöfn Samskipa í Svíþjóð frá upphafi og henta tengingar þangað ágætlega inn- og útflytjendum til og frá Noregi og Svíþjóð.
Í Varberg þekkja menn vel til viðskipta við Ísland og Íslendinga og hafa jafnframt góða þekkingu á þeirri þjónustu og því þjónustustigi sem Samskip bjóða viðskiptavinum sínum.
Það er von Samskipa að þessi breyting verði öllum til hagsbóta.

