Samskip - Fréttir

Nýja Arnarfellið reynist vel

1.2.2005

MJ2J5696Jómfrúarferð nýja Arnarfellsins hefur gengið vel fyrir utan smá örðugleika í Færeyjum, sem veldur því að það verður seinna á ferðinni í Reykjavík en upphaflega var ráðgert. Er það nú vætanlegt til hafnar síðdegis á morgun, 2. febrúar.

?Þetta hefur verið sannkölluð eldskírn fyrir skipið því við höfum fengið leiðindaveður alveg frá því við lögðum upp frá Svíþjóð á laugardagskvöld og það er áfram spáð suðvestan og frekar slæmu veðri,? segir Steinn Ómar Sveinsson skipstjóri. ?En þetta er tryggt og gott skip og hér um borð eru allir mjög ánægðir með skipið sjálft og allan aðbúnað.?  

Arnarfellið er að koma til landsins með stærsta einstaka farm sem Samskip hafa flutt, eða alls um 750 gáma sem vega 6.000 tonn, og þarf ein 450 híf til að koma honum frá borði. 

Eins og fram hefur komið er Arnarfellið nýja skráð í Færeyjum, af rekstrarlegum ástæðum, og þegar komið var til hafnar í Þórshöfn um miðnætti í gær var tekið á móti áhöfninni með blómum. ?Við lögðum líka okkar að mörkum og sigldum með upplýst skipið í þrjá hringi fyrir utan höfnina eins og til siðs er í Færeyjum þegar nýtt skip kemur til heimahafnar,? segir Steinn Ómar skipstjóri. 

Alls eru 11 manns í áhöfn Arnarfellsins. Yfirmenn, auk Steins Ómars, eru Ómar Karlsson yfirstýrimaður, Rögnvaldur Bjarnason, annar stýrimaður, Magnús Trausti Ingólfsson yfirvélstjóri og Svanur Eyþórsson, fyrsti vélstjóri. MJ2J5680 

Þá eru með í jómfrúarferð skipsins Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa, og Kristján Loftsson, stjórnarformaður Kers, sem er stærsti einstaki hluthafinn í Samskipum.



Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica