M/S Jökulfell - leiguskip Samskipa
Í gærkveldi um kl. 21.00 barst neyðarkall frá M/S Jökulfelli ? leiguskipi Samskipa þar sem það var statt um 60 mílur norð-austur af Færeyjum. Leit hófst þá þegar og sá færeyska Landhelgisgæslan að skipinu hafði hvolft. Um borð er 11 manna áhöfn og standa björgunaraðgerðir yfir. Áhöfnin er frá Rússlandi og Lettlandi
Kl. 23:30 bárust þær fréttir að færeyska Landhelgisgæslan hefði bjargað fimm sjómönnum og eru þeir komnir heilir á húfi um borð í danska skipið Vedderen.
Tvö skip frá færeysku gæslunni eru á staðnum auk þyrlu en Vedderen er væntanlegt á slysstað innan skamms þar sem leit að hinum skipverjunum sex stendur yfir.
Á slysstað er suð-vestan 15 metrar á sek og 6 metra ölduhæð.
Jökulfellið var á leið frá Liepaja í Lettlandi til Reyðarfjarðar og Reykjavíkur með um 2000 tonn af stáli. Skipið hefur verið í leigu Samskipa í um eitt ár og reynst vel.
MS Jökulfell er smíðað í Danmörku 1989. Það er frystiskip ásamt með að flytja almennan farm og hefur 3200 tonna flutningsgetu.

