Átta nýir BV206 Hägglund beltabílar til björgunarsveita
Slysavarnafélagið Landsbjörg afhendir í dag nokkrum björgunarsveita sinna 8 alhliða og aflmikla beltabíla - sænska Hägglund BV206. Fimm farartæki af þessari gerð hafa verið í notkun hjá björgunarsveitum og Landsvirkjun um nokkurra ára skeið og hafa reynst vel. Til þessa hafa þeir aðallega verið notaðir sem snjóbílar. BV206 getur reyndar athafnað sig við ótrúlegustu skilyrði á öllum árstímum, hvort heldur er uppi í hálendinu eða við hafið, enda er BV206 láðs- og lagarbíll og vagnarnir vatnsþéttir. Prófanir í Reykjavík undanfarna daga hafa sýnt og sannað fjölhæfni þessara tækja.
Fá Hägglund björgunarbílana
Björgunarsveitirnar sem fá bílana í dag eru þessar: Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík, Hjálparsveit skáta Kópavogi, Hjálparsveit skáta Garðabæ, Björgunarsveitin Ok Borgarfirði, Flugbjörgunarsveitin Vestur Húnavatnssýslu, Björgunarsveitin Skagfirðingasveit Sauðárkróki, Björgunarsveitin Strákar Siglufirði og Björgunarsveitin Stefán Mývatnssveit.
Það þarf varla að fjölyrða um að mikill áhugi er hjá mörgum liðsmönnum björgunarsveita landsins að geta haft til umráða farartæki sem þetta, svo fjölhæft sem það er. Með slíku tæki má ferðast hratt á slysstað, og fara yfir erfitt landslag, ár og vötn. SL réðst að þessu sinni í kaup á 8 notuðum bílum frá sænska hernum, þegar gott verð fékkst. Það gerðist fyrir ágæta milligöngu sænska sendiherrans hér á landi.
En hvað hefur Hägglund BV206 beltabíllinn fram að færa fyrir björgunarsveitinar?
** BV206 má aka á allt að 55 km hraða á landi.
** BV206 fer í vatn án undirbúnings og siglir á vatni með allt að 4 hnúta hraða.
** BV206 ekur örugglega upp allt að 60% halla.
** BV206 má aka í snjó, sandi, grasi og mold án þess að valda miklu raski.
Hägglund BV206 er fjölnota tæki sem notað er allt frá jöklum til eyðimarka. Í dag eru 11.000 tæki í notkun í 40 löndum, notuð til hernaðarlegra sem og borgaralegra nota.
Félagið fær bílana á mjög góðu verði og hefur notið góðvildar Samskipa varðandi flutning þeirra heim til Íslands. Slysavarnafélagið Landsbjörg er þakklátt sænskum yfirvöldum fyrir þeirra þátt í að unnt reyndist að gera þessi bílakaup.
Það er von okkar að nýju björgunartækin eigi eftir að reynast giftudrjúg í starfi björgunarsveitanna sem fá bíllyklana í hendur í dag. Ljóst er að slík tæki geta skipt sköpum á neyðarstundum. Þau fara hratt yfir úfið land og komast lengra en önnur landfarartæki. Stór kostur við öflug belti þessara bíla er hversu lítið þau raska landi þar sem ekið er um gróið land. Álagið sem beltin skapa þar sem ekið er um er nánast eins og eftir mannsfótinn.
Nokkrar tölulegar staðreyndir um Hägglund BV206
Árgerð: Smíðaðir á árunum 1980 til 1985, lítið notaðir
Lengd: 6,90 metrar Breidd: 1,90 m
Hæð: 2,3 m fremri vagn - 2,5 m. aftari vagn
Tómaþyngd: 2.740 kíló fremri vagn - 1,760 aftari vagn
Hleðsla: 630 kg í fremri vagn - 1.610 í aftari vagn
Farþegar: 6(með ökumanni) í fremri vagn - 11 í afturvagn

