Samskip - Fréttir

Kjalar ehf.með um 56% hlut í Keri hf.

17.3.2005

Kjalar ehf. hefur keypt stærstan hlut Vogunar og hlut Fiskveiðihlutafélagsins Venusar í Keri hf. Eftir kaupin á Kjalar 55,7% eignarhlut í Keri. Kaupverðið er trúnaðarmál.

Með kaupunum vilja eigendur Kjalars, Vogunar og Venusar styrkja stöðu Kers og tryggja rekstrarlegan stöðugleika félagsins. Með kaupunum er jafnframt eytt þeirri óvissu sem hefur skapast með nýjum eigendum sem komið hafa að Keri að undanförnu.

Eftir þessi viðskipti eru eigendur Kers; Kjalar ehf. með 55,7% hlut, Vogun með 5,0% hlut, stjórnendur með 4,4% hlut og aðrir hluthafar eiga 34,9% hlut.

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica