Samskip - Fréttir

Samskip herða útrásina í austurveg

Nýjar skrifstofur í Eystrasaltslöndunum

31.3.2005

Samskip hafa opnað nýjar skrifstofur í Eistlandi, Lettlandi og Litháen til að sinna ört vaxandi starfsemi félagsins í þessum löndum og efla enn frekar sókn Samskipa inn á rússneska markaðinn og áfram austur á bóginn.

Eystrasaltsskrifstofurnar, sem staðsettar eru í Tallin, Riga og Klaipeda, styrkja enn frekar stöðugt vaxandi gámaflutninganet Samskipa erlendis og felst þjónustan fyrst og fremst í umfangsmikilli flutningastarfsemi á sjó, landi og í lofti, þar sem sinnt er jöfnum höndum alhliða flutningamiðlun og gáma-, frysti- og stórflutningum.

"Við ætlum að styrkja stöðu okkar á þessum mörkuðum með því að koma betur á framfæri þeim skraddarasaumuðu heildarlausnum á öllum sviðum flutninga sem Samskip bjóða upp á. Þar gegna nýju skrifstofurnar mikilvægu hlutverki," segir Björn Einarsson, framkvæmdastjóri sölu og markaðsmála hjá Samskipum erlendis en Eystrasaltsskrifstofurnar heyra undir höfuðstöðvar Samskipa í Rotterdam.

Náið samstarf verður við skrifstofur félagsins í Rússlandi og Úkraínu til að ná fram sem mestri hagkvæmni. "Þungamiðja flutningastarfsemi í Evrópu er að færast austar og hér höfum við sterka stöðu, hvort sem um er að ræða flutningsmiðlun áfram austur á bóginn með skipum, lestum eða flutningabílum," segir Björn.

Svæðisstjóri Eystrasaltsskrifstofanna er Belgíumaðurinn Hans Christiaensen sem þekkir vel þessa markaði eftir að hafa starfað í sjö ár fyrir Ahlers Logistic and Maritime Services í Eystrasaltslöndunum, áður en hann kom til starfa hjá Samskipum.

Einnig hafa Samskip tekið að sér að vera umboðsaðili japanska skipafélagsins Mitsui O.S.K. Lines í Eystrasaltslöndunum þremur en félagið hefur verið umboðsaðili Mitsui í Rússlandi frá árinu 2001. "Með auknu samstarfi við Mitsui og tilkomu nýju Eystrasaltsskrifstofanna erum við mun betur í stakk búin til að sinna stöðugt vaxandi flutningum austur á bóginn til Rússlands og áfram til fyrrum Sovétlýðvelda sem og fleiri áfangastaða í Mið-Asíu," segir Björn Einarsson.

Heimilisföng skrifstofa Samskipa í Eystrasaltslöndunum:

Oü SAMSKIP

4 Sadama Street

10111 Tallinn

Estonia

tallinn@samskip.com

SAMSKIP Sia

Pulkveza Brieza 15

1010 Riga

Latvia

riga@samskip.com

SAMSKIP UAB

Tilzes street 38, 2nd floor

91112 Klaipeda

Lithuania

Klaipeda@samskip.com

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica