Samskip - Fréttir
Eins árs afmæli Samskipa í Færeyjum
Samskip styrkja Sjóbjörgunarstöð Færeyja
Samskip færðu Sjóbjörgunarstöð Færeyja rúmlega eina milljón króna að gjöf í hófi sem haldið var í Þórshöfn í Færeyjum til að minnast eins árs starfsafmælis skrifstofu Samskipa þar.
Það var Knútur G. Hauksson, forstjóri Samskipa, sem afhenti Joen Jakob Jakobsen, formanni Sjóbjörgunarstöðvarinnar, gjöfina sem þakklætisvott fyrir þeirra þátt í björgun sjómanna af Jökulfellinu í febrúar sl. Minnti Knútur á hversu nátengdir Færeyingar og Íslendingar væru hafinu og að þeir gerðu sér grein fyrir hættunum sem því fylgdu. Því væri afar mikilvægt að hafa góðar björgunarsveitir til sjós og lands sem hefðu á að skipa góðu fólki og væru vel tækjum búnar. Því hefðu Samskip nú um nokkurt skeið líka styrkt starfsemi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Íslandi.
Fjölmenni var í hófinu í Færeyjum og var borgarstjórinn í Þórshöfn, Heðin Mortensen, meðal gesta. Notaði forstjóri Samskipa tækifærið og þakkaði viðskiptavinum í Færeyjum góðar móttökur og sívaxandi viðskipti á fyrsta starfsári félagsins þar en 1. apríl sl. var eitt ár liðið frá því að skrifstofa Samskipa í Færeyjum tók til starfa. "Vöruflutningar til og frá Færeyjum fyrsta árið hafa farið fram úr björtustu vonum okkar Samskipamanna og erum við afar bjartsýnir á framtíðina," sagði Knútur G. Hauksson forstjóri.
Samskip hafa nú viðkomu tvisvar í viku í Færeyjum. Nýju skipin Arnarfell og Helgafell, sem skráð eru í Færeyjum, hafa viðkomu í Þórshöfn á mánudögum á leið frá Árósum til Reykjavíkur. Akrafell og Skaftafell hafa einnig viðkomu á mánudögum í Klakksvík á leið frá Reyðarfirði til Immingham á Bretlandseyjum og Rotterdam í Hollandi.
Myndatexti:
Knútur G. Hauksson forstjóri Samskipa afhendir Joen Jakob Jakobsen formanni Sjóbjörgunarstöðvarinnar ávísun að upphæð 100 þúsund færeyskar krónur (ríflega ein milljón íslenskar) sem þakklætisvott frá Samskipum.

