Samskip - Fréttir

Samskip kaupa frystiflutninga- og geymslustarfsemi hollenska fyrirtækisins Kloosterboer

26.4.2005

Samskip hafa keypt frystiflutninga- og geymslustarfsemi hollenska flutningafyrirtækisins Kloosterboer og verður hún sameinuð frystiflutningastarfsemi Samskipa. Um er að ræða frystigeymslur fyrir sjávarafurðir í Hollandi, Noregi og Færeyjum og er heildargeymsluplássið um 84 þúsund tonn, samanborið við um sex þúsund tonna geymslupláss í Ísheimum, frystigeymslu Samskipa á Íslandi. Kloosterboer er umfangsmesta fyrirtækið á sínu sviði í Hollandi með um 100 starfsmenn og eftir kaupin verða Samskip því eitt af leiðandi fyrirtækjum Evrópu í þjónustu við sjávarútveginn, með frystiskip, frystigeymslur, löndunaraðstöðu og gámaflutningastarfsemi. Jafnframt er stefnt á enn frekari markaðshlutdeild í frystiflutningum í Eystrasaltslöndunum og Asíu.

Norway

Kaupin á Kloosterboer eru enn einn áfanginn í útrás Samskipa og eftir kaupin er gert ráð fyrir að áætluð velta Samskipasamsteypunnar á þessu ári verði um 45 milljarðar króna. Kloosterboer höndlar um 220 þúsund tonn af sjávarafurðum árlega og eftir kaupin er gert ráð fyrir að flutningar Samskipa á frosnum fiski nemi ríflega einni milljón tonna á þessu ári. Eftir kaupin á frystiflutninga- og geymslustarfsemi Kloosterboer eiga Samskip sjö þúsund tonna frystigeymslu í Kollafirði í Færeyjum, 20 þúsund tonna frystigeymslu í Álasundi í Noregi, 40 þúsund tonna frystigeymslu í Ijmuiden [Æmuden] í Hollandi og 17 þúsund tonna frystigeymslu í Rotterdam, auk Ísheima hér heima, sem taka um 6 þúsund tonn. Einnig fylgir með í kaupunum sjávarútvegstengd starfsemi félaganna Kloosterboer Shipping BV og Kloosterboer International Forwarding BV. Kaupverð er ekki gefið upp.

"Samþætting starfsemi Kloosterboer við frystiflutningastarfsemi Samskipa á Íslandi og erlendis mun styrkja umtalsvert stöðu okkar á Evrópumarkaði og gera okkur kleift að bjóða sjávarútvegsfyrirtækjum upp á alhliða þjónustu," segir Ólafur Ólafsson, starfandi stjórnarformaður Samskipa.

IJmuiden

"Nú getum við jöfnum höndum boðið upp á landanir úr frystitogurum og vinnsluskipum á Íslandi, í Færeyjum, Noregi og Hollandi, sem og geymslu alls kyns frystiafurða. Einnig erum við með umfangsmikla flutningaþjónustu á frysti- og kælivörum vítt og breitt um heiminn; hvort sem er í Skandinavíu, Norður-Evrópu, Norður-Ameríku eða Asíu, en mikil gerjun er í þessari flutningastarfsemi í heiminum í dag," segir Ólafur. Ásamt Samskipum og Kloosterboer á dótturfélagið SilverSea í Noregi að leika þar stórt hlutverk með sín 15 frystiskip og markaðsráðandi stöðu á Norður-Atlantshafi í flutningum á frystum sjávarafurðum. "Með sameinuðum kröftum og þeirri sérfræðiþekkingu sem við búum yfir með samþættingu á starfsemi þessara félaga, Samskipa, SilverSea og Kloosterboer, getum við tryggt viðskiptavinum okkar mjög fullkomna frystiflutningaþjónustu og þá geta þeir einbeitt sér frekar að eigin starfsemi," segir Ólafur.

 

Þróun nýrra leiða í frysti- og kælivöruflutningum

Faroe

Umhverfismál skipta æ meira máli í  flutningastarfsemi í Evrópu, ekki síst vegna aukinnar skattheimtu á vöruflutningabíla til að reyna að draga úr mengun og slysahættu á þjóðvegum. Hafa gámaflutningar með skipum, lestum og fljótaprömmum verið að sækja í sig veðrið, ekki síst með tilkomu svokallaðra 45 feta gáma sem eru fyllilega samkeppnishæfir við hefðbundna vöruflutningabíla. Með kaupum Samskipa á dögunum á Geest North Sea Line bættist umtalsvert magn 45 feta gáma í flota félagsins, þ.á.m. 45 feta kæligámar, svokölluð Coolboxx, sem eiga vaxandi vinsældum að fagna enda hefur notkun þeirra gefið mjög góða raun.

 

"Við hjá Samskipum erum mjög spenntir fyrir þeim möguleikum sem Coolboxx kæligámarnir hafa upp á að bjóða og því höfum við nú einsett okkur að þróa þá þjónustu enn frekar fyrir flutninga á kældum sjávarafurðum," segir Ásbjörn Gíslason, annar forstjóra Samskipa, "og er það liður í áformum okkar um frekari uppbyggingu félagsins erlendis."

Samskip reka nú 47 skrifstofur í 21 landi, auk þess sem umboðsmenn eru starfandi um allan heim. Eru starfsmenn Samskipa orðnir nærri 1.300 talsins eftir kaupin á Kloosterboer.


Kloosterboer í Rotterdam

Um Kloosterboer

Hollenska frystiflutningafyrirtækið Kloosterboer var stofnað árið 1925 og höndlaði fyrst og fremst með grænmeti framan af. Fyrsta frystigeymsla félagsins reis árið 1960 og var þrjú þúsund rúmmetrar að stærð en í dag er geymslurýmið í frystivörugeymslum félagsins í Hollandi, Noregi og Færeyjum samtals um tvær milljónir rúmmetra og starfsmenn sem vinna við frystigeymslurnar eru samtals 54; 38 í Hollandi, 12 í Noregi og 4 í Færeyjum. Kloosterboer Shipping er markaðsráðandi í frystiflutningum í Norður-Evrópu og Kloosterboer International Forwarding er umsvifamikill umboðsaðili fyrir flutninga til og frá Rotterdam og hefur starfsemin stöðugt verið að aukast.

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica