Háskóli Íslands og Samskip í samstarf um kvikmyndafræði
Kennsla hefst í haust í kvikmyndafræði sem sjálfstæðri námsgrein við hugvísindadeild Háskóla Íslands og ætla Samskip að styðja námið rausnarlega með því að kosta stöðu kennara. Til að byrja með verður kvikmyndafræðin 30 eininga aukagrein á BA stigi en stefnt er að því að byggja upp framhaldsnám í greininni á næstu árum.
Styrkur Samskipa til Háskóla Íslands vegna kvikmyndafræðinámsins nemur 3,6 milljónum króna á næsta ári og var samningur þar að lútandi undirritaður í háskólaráðsherberginu í Aðalbyggingu Háskólans í dag af Páli Skúlasyni rektor og Ólafi Ólafssyni, starfandi stjórnarformanni Samskipa.
Kvikmyndin er sú listgrein sem mest ítök hefur í menningaruppeldi Vesturlandabúa en alþjóðlegi kvikmyndaiðnaðurinn veltir milljörðum dala árlega. Þótt Íslendingar hafi tekið kvikmyndinni opnum örmum fyrir réttri öld og gert hana að einum helsta afþreyingar- og menningarmiðli sínum, og þó svo að nú hafi í um aldarfjórðung verið stunduð samfelld kvikmyndagerð hér á landi, hefur skipulögð háskólakennsla á fræðasviðinu verið nær engin og aldrei hefur verið reynt að koma upp sérstakri braut í kennslugreininni á háskólastigi. Af þessum sökum hefur ekki mótast öflug hefð í kvikmyndaumræðu á Íslandi, á borð við það sem finna má í öðrum listgreinum, einkum þó auðvitað bókmenntum.
Innan bókmenntafræði- og málvísindaskorar í Háskóla Íslands hefur að vísu verið boðið upp á nokkur kvikmyndanámskeið á síðustu árum, en nú ráðgerir skorin að bjóða kvikmyndafræði sem sjálfstæða grein frá og með næsta háskólaári, þ.e. frá og með haustmisseri 2005.
"Markmiðið með kennslu í kvikmyndafræði er meðal annars að varpa ljósi á þróun og sögu kvikmynda á Vesturlöndum og að nokkru leyti í öðrum heimshlutum, að þjálfa stúdenta í að skilja og túlka kvikmyndir frá ýmsum tímum og ólíkum þjóðlöndum, og kynna helstu hugtök og vinnuaðferðir í kvikmyndafræði. Þróttmikið kennslu- og rannsóknastarf á þessu sviði mun í framtíðinni skila sér í betri kvikmyndamenningu hér á landi," segir Páll Skúlason rektor. "Þykir okkur vel við hæfi að íslenskt fyrirtæki í alþjóðlegum vöruflutningum styðji við bakið á - og raunar leggi grunn að - nýju fræðasviði hér á landi, fræðasviði sem lýtur að þeim listmiðli sem á hvað augljósastan hátt tengir saman íslenska og erlenda menningarheima."
Samskip eru alhliða flutningafyrirtæki sem býður hvers kyns flutninga og tengda þjónustu, hvort sem er í lofti, á láði eða legi. Félagið rekur nú 47 skrifstofur í 21 landi auk þess sem umboðsmenn eru starfandi um allan heim. Það er stefna félagsins að vera virkur og virtur þátttakandi í íslensku samfélagi og styðja við góð málefni. Er kvikmyndafræðin annað verkefnið á vegum Háskóla Íslands sem Samskip leggja lið því skemmst er að minnast þriggja ára samstarfssamnings sem gerður var við verkfræðideild Háskóla Íslands - og metinn er á rúmar 10 milljónir króna að heildarverðmæti.

