Samskip - Fréttir

Samskipabásinn í Færeyjum
Image096

North Atlantic Fish Fair - sýning í Færeyjum

Mikilvægt að fylgjast með og kynnast

9.5.2005

Sýningar sem þessar eru gríðarlega mikilvægar fyrir Samskip. Lífæð Færeyja er og verður ávallt tengd fiskveiðum, vinnslu og flutningum. Hér gefst gott tækifæri til að hitta fólk, bæði heimamenn og gesti frá öðrum löndum.

Samskip í Færeyjum hafa vaxið hratt síðastliðið ár og hafa aukin umsvif vakið mikinn áhuga fólks. Eru nú tvær viðkomur í viku hverri í Færeyjum og fjögur skip sem koma þar við. Þá hefur ný og glæsileg skrifstofa verið opnuð í Þórshöfn.

Í lok apríl keyptu Samskip Kloosterboer frystigeymsluna í Kollafirði.  Fastir starfsmenn Samskipa í Færeyjum eru því orðnir 9.  Með kaupunum á Kloosterboer styrktu Samskip stöðu sína til mikilla muna bæði í Færeyjum, Noregi og Hollandi.  Því eru spennandi tímar framundan hjá Samskipum í Færeyjum, sem og annars staðar í heiminum. 

Sýningin hefur stækkað og breyst og má segja að á hana sé komið þroskamerki þar sem hún er núna undir þaki á Hjalla.  Skipulagning var ágæt og margt fróðlegt í boði, t.a.m. fyrirlestrar tengdir iðnaðinum.  Hugsanlegt er að sýningin hafi liðið fyrir að vera haldin strax á eftir sýningunni í Brussel, annars kæmu eflaust fleiri gestir.  Sýningin gegnir einnig hlutverki hjá ungu fólki, þ.e. að kynna iðnaðinn fyrir ungu fólki á leið í framhaldsnám og einnig þeim sem eru að koma út á vinnumarkaðinn.  Mikilvægt er fyrir ungt fólk að fá víðtæka sýn á þennan heim og mikilvægi hans fyrir Færeyjar.

Senda grein






Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica