Samningur um uppsetningu og rekstur risakrana á milli Bectel og Samskipa
Bechtel, sem byggir álver Alcoa Fjarðaáls við Reyðarfjörð og Samskip hafa gert með sér samning um uppsetningu og rekstur á risakrana við hina nýju álvershöfn. Kraninn mun verða settur upp og starfræktur af Samskipum og verða notaður við uppskipun á stórförmum og gámum með hráefni til álverksmiðjunnar.
Samskip munu setja kranann upp í júlí og á hann að verða tilbúinn 30. júlí þar sem fyrsta stóra sendingin af stáli er væntanleg í byrjun ágúst. Kraninn er af gerðinni Liebherr LHM400 og er eigin þyngd hans um 400 tonn. Lyftigeta kranans er 104 tonn og er hann sambærilegur við þann sem er hjá Samskipum í Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir:
Björn S. Lárusson, Framkvæmdastjóri samfélagssamskipta í síma 843 7495 & 470 7495 eða með tölvupósti: bslaruss@bechtel.com.

