Samskip - Fréttir

Undirskrift Samskip og ÍBV
Undirskrift Samskip og ÍBV
Mynd: Hinrik Örn Bjarnason, deildarstjóri útflutnings Samskipa, og Viðar Elíasson, formaður knattspyrnudeildar IBV, handsala samninginn.

Samskip og Herjólfur aðalstyrktaraðilar knattspyrnudeildar ÍBV

10.6.2005

Samskip og knattspyrnudeild IBV hafa skrifað undir samning um samstarf félaganna til næstu tveggja ára.

Samningurinn felur í sér að Samskip og Vestmannaeyjaferjan Herjólfur, sem Landflutningar-Samskip reka, verða einn af aðalstyrktaraðilum meistaraflokks karla og kvenna árin 2005 og 2006.

Auk fjármagns sem Samskip leggja ÍBV til, eru ferðir með Herjólfi hluti af samkomulagi félaganna en svipaður samningur hefur verið í gildi milli félaganna frá árinu 1999. Samskip hafa einnig styrkt handknattleiksdeild ÍBV, bæði meistaraflokk karla og kvenna, um árabil.

"Svona samningur skiptir okkur miklu máli," segir Oddný Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri meistaraflokks karla. "Þetta hjálpar t.d. mikið við að ná niður ferðakostnaði, sem er stór útgjaldaliður hjá okkur, auk þess sem það er alltaf mikill styrkur að vera í samstarfi við jafn gróið og traust fyrirtæki og Samskip eru."

Eyjastúlkur urðu bikarmeistarar í meistaraflokki kvenna í fyrra og ÍBV hafnaði í öðru sæti í bæði meistaraflokki karla og kvenna á Íslandsmótinu.

Senda grein






Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica