Samskip - Fréttir

Hluthafafundur

14.6.2005

Stjórn Samskipa hf. boðar til hluthafafundar mánudaginn 20. júní 2005 kl. 16.00 síðdegis í ráðstefnusal að Kjalarvogi 7-15, Reykjavík.

Dagskrá fundarins er:

1. Tillaga um heimild til stjórnar, til allt að fimm ára, til að auka hlutafé félagsins um allt að kr. 700.000.000 að nafnverði, á því gengi sem stjórnin ákveður, þó þannig að hluthafar falli frá forkaupsrétti að hækkuninni. Tillagan gerir ráð fyrir að gildandi heimild stjórnar til að auka hlutafé félagsins um allt að kr. 300.000.000 verði jafnframt felld niður.

2. Önnur mál löglega upp borin.

Fundargögn, þ.m.t. framangreind tillaga, verða hluthöfum til afhendingar á skrifstofu félagsins viku fyrir hluthafafundinn.

Stjórn Samskipa hf.

Senda grein






Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica