Skaftafellið fyrsta flutningaskipið sem leggst við bryggju í álvershöfninni á Reyðarfirði
Skaftafellið kom til Reyðarfjarðar í gær, þriðjudaginn 19. júlí, með fyrsta farminn sem skipað er upp í nýju álvershöfninni. Það er krani af gerðinni Liebherr LHM400 með allt að 110 tonna lyftigetu og verður hann notaður við uppskipun á stórförmum og gámum með hráefni til álversins. Er þetta í fyrsta sinn sem flutningaskip lagðist við kæja í nýju álvershöfninni.
Samskip munu annast uppsetningu kranans og rekstur og á hann að vera tilbúinn til notkunar í næsta mánuði þegar fyrsta stóra sendingin af stáli í álverið er væntanleg. Samningar um rekstur og uppsetningu kranans voru undirritaðir á dögunum milli Samskipa og alþjóðlega byggingafyrirtækisins Bechtel, sem annast byggingu álvers Fjarðaáls.
Umsvif Samskipa eystra hafa aukist umtalsvert vegna álversframkvæmdanna. Í ársbyrjun var undirritaður stærsti einstaki flutningasamningur sem Samskip á Íslandi hafa gert, þegar félagið tók að sér flutninga á allskyns varningi, tólum og tækjum fyrir álversframkvæmdirnar, til viðbótar flutningum sem hófust sl. haust á vinnubúðum vegna álversframkvæmdanna.
Til að mæta þessum auknu flutningum hafa Samskip m.a. tekið í notkun stærri og öflugri skip á siglingaleiðinni Reykjavík-Reyðarfjörður-Færeyjar-England-Rotterdam-Reykjavík. Nýju skipin, sem fengið hafa nöfnin Akrafell og Hvassafell, hafa viðkomu að jafnaði vikulega á Reyðarfirði og geta hvort um sig flutt 600 gámaeiningar. Þá er Skaftafellið, sem flytur kranann til Reyðarfjarðar, einnig í ýmsum sérverkefnum.

