Evrópsk samkeppnisyfirvöld samþykkja kaup Samskipa á breska skipafélaginu Seawheel
Kaup Samskipa á breska skipafélaginu Seawheel eru nú endanlega frágengin í kjölfar úrskurðar evrópskra samkeppnisyfirvalda í málinu.
Engar athugasemdir voru gerðar af hálfu evrópskra samkeppnisyfirvalda við kaupin á Seawheel, sem tilkynnt voru fyrr í sumar, og fyrirhugaða sameiningu félagsins við starfsemi hollenska flutningafyrirtækisins Geest North Sea Line, sem Samskip keyptu fyrr á árinu. Að sögn Ásbjörns Gíslasonar, forstjóra Samskipa, var strax hafist handa við sameiningu félaganna þegar úrskurðurinn lá fyrir og hefur stjórn Seawheel þegar látið af störfum. Heyrir rekstur félagsins nú undir stjórn Geest en þar til annað verður tilkynnt verða vörumerkin Seawheel og Geest notuð áfram jöfnum höndum.
Seawheel og Geest hafa verið leiðandi í flutningum milli meginlands Evrópu og Bretlands, Írlands og Skotlands og styrkja Samskip því enn frekar stöðu sína á þessum markaði með sameiningu félaganna. Sameiningunni fylgja umtalsverð samlegðaráhrif, sem skila sér í aukinni og betri þjónustu og hagkvæmari kjörum fyrir viðskiptavini, en jafnframt er nauðsynlegt að samhæfa reksturinn þar sem starfsemin skarast. Er nú unnið að frekari útfærslu þeirra mála, bæði hvað varðar skrifstofuhald, siglingaleiðir og tölvu-og upplýsingakerfi.
Eftir kaupin á Seawheel eru Samskip með 36 skip í föstum áætlunarsiglingum sem flytja árlega um 1,1 milljón gámaeininga milli hafna í Evrópu. Starfsmenn félagsins eru um 1.550 talsins og áætluð velta á þessu ári um 58 milljarðar íslenskra króna.

