Samskip - Fréttir

Samskip styrkja meistaranema í verkfræði

18.8.2005

Guðjón Örn Björnsson, nemi í byggingaverkfræði við University of Alberta og Háskóla Íslands hefur hlotið styrk upp á eina milljón króna frá Samskipum til að vinna að meistaraprófsverkefni um setningu þungatakmarkana á vegum. Styrkurinn er hluti af þriggja ára samstarfssamningi Samskipa og verkfræðideildar HÍ sem gengið var frá haustið 2003.

Undirskrift um meistaranám

Markmið samningsins er að styrkja tengsl og gagnkvæm samskipti verkfræðideildarinnar og Samskipa og efla rannsóknir á sviði flutningafræða.  Taka Samskip m.a. að sér að greiða námsstyrk eins verkfræðinema meðan hann leysir meistaraprófsverkefni.  Á móti tryggir verkfræðideildin að verkefnið stuðli að framþróun á sínu sviði og að því verði lokið fyrir miðjan maí á næsta ári.  Bæði Samskipum, Háskóla Íslands og meistaraprófsnemanum verður heimilt að nýta og þróa áfram þær lausnir sem verkefnið kann að leiða til.

Samkomulag þessu til staðfestingar var undirritað í vikunni af Pálmari Óla Magnússyni, framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Samskipa og Sigurði Erlingssyni, varadeildarforseta verkfræðideildar HÍ.  Viðstödd undirskriftina voru styrkþeginn, Guðjón Örn Björnsson, Bjarni Bessason prófessor, Fjóla Jónsdóttir dósent, Elsa Þóra Árnadóttir, markaðsfulltrúi hjá Samskipum, Kristján M. Ólafsson, deildarstjóri flutningastjórnunardeildar Samskipa og Eva Hlín Dereksdóttir, verkfræðingur á rekstrarsviði Samskipa.  Sigurður Erlingsson er jafnframt leiðbeinandi og umsjónarmaður verkefnisins af hálfu verkfræðideildar HÍ en Kristján og Eva Hlín eru tengiliðir Samskipa.



Senda grein






Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica