Samskip fá viðurkenningu Reykjavíkurborgar
Samskip hlutu viðurkenningu skipulagsráðs Reykjavíkur árið 2005 vegna fegurstu lóða fyrirtækja í borginni. Einnig voru veittar viðurkenningar fyrir lóðir fjölbýlishúsa og endurbætur á eldri húsum.
Ásbjörn Gíslason forstjóri veitti viðurkenningunni viðtöku fyrir hönd Samskipa í hófi í Höfða í gær, á afmælisdegi Reykjavíkurborgar. Fram kemur í niðurstöðu vinnuhópsins sem kom með tilnefningar til Skipulagsráðs að Samskip fá verðlaun í flokki atvinnu- og stofnanalóða ?...fyrir snyrtilega og stílhreina lóð á stóru athafnasvæði?. Annað fyrirtækið við Sundahöfn, Danól, hlaut einnig viðurkenningu í þessum flokki.
Við hönnun nýja Samskipahússins var horft til þess að það yrði í senn vörumerki og ímynd félagsins, í krafti stærðar, forms og efnisvals. Það sama má segja um hönnun lóðarinnar sem Áslaug Traustadóttir og Ingibjörg Kristjánsdóttir, landlagsarkitektar hjá Landmótun, höfðu veg og vanda af. Tenging við hafið og höfnina er þemað í hönnuninni þar sem ryðgað bryggjuþil, steinfylltar netkistur og melgresi í svörtum sandi skapa skemmtilegar andstæður.
Í greinargerð Skipulagsráðs með viðurkenningunni kemur fram að þeim sé ætlað að virka hvetjandi á húseigendur í Reykjavík og forráðamenn stofnana og fyrirtækja í borginni. ?Fallegar og vel hirtar lóðir eru til ánægju og yndisauka í borginni og með því að vekja athygli á þeim er hvatt til að húsráðendur og forráðamenn fyrirtækja og stofnana fylgi fordæminu.
