Samskip opna skrifstofu í Víetnam
-fjórða skrifstofa félagsins í Austur-Asíu
Mikill vöxtur er í starfsemi Samskipa í Asíu og hefur fjórða skrifstofa félagsins þar nú verið opnuð í Ho Chi Minh borg í Víetnam. Fyrir eru Samskip með skrifstofu í Pusan í Suður-Kóreu og Qingdao og Dalian í Kína.
Rekstur nýju skrifstofunnar heyrir undir aðalskrifstofu Samskipa í Pusan en yfirmaður hennar er Yong-Jun Nam. Sölustjórar í Víetnam eru Suh Chang-Kun og Tran-Huynh Minh og verða þrír starfsmenn á skrifstofunni þar til að byrja með.
Flutningar á frystum fiski eru meginverkefni skrifstofa Samskipa í Asíu og hefur starfsemin gengið mjög vel, allt frá opnun fyrstu skrifstofunnar í Pusan í febrúar árið 2003.
"Það hefur verið mikill vöxtur í fiskvinnslunni í Víetnam og við sjáum fyrir okkur enn frekari aukningu á komandi misserum," segir Einar Þór Guðjónsson, framkvæmdastjóri frysti- og kæliflutningasviðs Samskipa. Hann segir að miðstöð fiskvinnslunnar í Víetnam sé í grennd við Ho Chi Minh borg og því sé opnun skrifstofunnar þar rökrétt skref í áframhaldandi uppbyggingu flutninganets Samskipa í Asíu.
Heimilisfang skrifstofunnar í Víetnam er:
Samskip LTD
17 Truong Son Street, Tan Binh District,
Ho Chi Minh City
VIETNAM
Tel: +84 8 449 0178
Fax: +84 8 811 4595
Netfang: minh.th@samskip.com.vn

