Samskip - Fréttir
Golfmot Eyjar 2

Golfmót Samskipa í Vestmannaeyjum

12.9.2005

Um 80 viðskiptavinir og starfsmenn Samskipa tóku þátt í árlegu golfmóti félagsins í Vestmannaeyjum 2.september s.l. í blíðskaparveðri.

Eyjamenn voru góðir heim að sækja, umhverfið glæsilegt og viðurgjörningur allur til fyrirmyndar.

Að móti loknu var boðið til kvöldverðar í skála Golfklúbbs Vestmannaeyja og veitt verðlaun fyrir góða frammistöðu.
Að þessu sinni hlaut Sigurjón Pálsson hjá FISCO viðurkenningu fyrir besta skor, Erla Adólfsdóttir fyrir flesta punkta og einnig var besta hollið verðlaunað.

Samskip óska verðlaunahöfunum til hamingju um leið og öllum sem tóku þátt í mótinu er þakkað fyrir ánægjulega og góða samveru.

Golfmot Eyjar 3 Golfmót Eyjar 4 Golfmót Eyjar 6
   

Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa og Íris Magnúsdóttir, markaðsfulltrúi afhenda vinningshöfum glæsilega vinninga.

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica