Samskip - Fréttir
Stuðmannaball

Vel heppnuð sjávarútvegssýning

13.9.2005

Íslenska sjávarútvegssýningin sem haldin var í Kópavogi í síðustu viku var ákaflega vel sótt og gestir og sýnendur almennt ánægðir. Samskip tóku þátt í sýningunni að venju, voru bæði með bás á sýningarsvæðinu og tjald á útisvæði þar sem vinum og velunnurum var boðið til gleðistundar.

Margir góðir gestir litu við í bás Samskipa á sýningunni og þáðu kaffi og góðar gjafir en hápunkturinn var þó án efa Stuðmannaball Samskipa á Nasa 7.september sl., daginn sem sýningin hófst. Þar mættu tæplega 700 manns og skemmtu allir sér hið besta við dillandi tóna hinna síungu, bráðskemmtilegu Stuðmanna. Var það mál manna að ákaflega vel hafi tekist til og vonandi verði þetta upphaf að fastri venju á fyrsta degi sjávarútvegssýningarinnar á Íslandi.

Stuðmenn á Nasa



Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica