Framtíðaraðstaða Samskipa á Akureyri á Oddeyrartanga
Umhverfisráð Akureyrar hefur samþykkt erindi Samskipa um lóð fyrir framtíðaraðstöðu félagsins á hafnarsvæðinu við Oddeyrartanga. Samskipamenn fagna því að niðurstaða er komin í málið. Verður nú hafist handa við hönnunarvinnu og standa vonir til að byggingarframkvæmdir geti hafist í vetur.
Um er að ræða átta þúsund fermetra lóð við Laufásgötu og Gránufélagsgötu á Oddeyrartanga, á svæði sem skilgreint er sem hafnarsvæði. Á fundi umhverfisráðs 14. september sl. var erindi Samskipa vísað til umsagnar stýrihóps um Akureyri í öndvegi, þar sem svæðið var skilgreint sem hluti af samkeppnissvæðinu um skipulag miðbæjarins, og var svar stýrihópsins kynnt á fundi ráðsins í 28. september sl. Stýrihópurinn gerir ekki athugasemdir við að umrædd lóð verði veitt fyrir þessa starfsemi og í framhaldi af því samþykkti meirihluti Umhverfisráðs erindi Samskipa. Verður stærð lóðar og byggingarreitur skilgreindur frekar í nýju deiliskipulagi sem er í vinnslu.

