Samskip - Fréttir

IMG_9145
Lofsvert lagnaverk
Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa veitir viðtöku viðurkenningu Lagnafélags Íslands fyrir „lofsvert lagnaverk 2004" úr hendi Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, formanns Lagnakerfamiðstöðvar Íslands.

Samskip hljóta viðurkenningu fyrir lofsvert lagnaverk

11.10.2005

Nýja Samskipahúsið við Kjalarvog hlaut viðurkenningu Lagnafélags Íslands fyrir "lofsvert lagnaverk 2004" og veitti Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa, henni viðtöku við hátíðlega athöfn í höfuðstöðvum Samskipa í gær. Samtímis fengu fulltrúar 11 fyrirtækja sem komu að lagnavinnu í Samskipahúsinu afhentar viðurkenningar fyrir annars vegar "lofsvert heildarverk 2004" og hins vegar "lofsvert handverk 2004" úr hendi Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, formanns Lagnakerfamiðstöðvar Íslands.

Allt frá árinu 1990 hefur Lagnafélag Íslands veitt viðurkenningar fyrir lagnaverk í nýbyggingum á Íslandi sem þykja framúrskarandi í hönnun og uppsetningu. Tilgangur viðurkenninganna er að efla gæðavitund þeirra sem starfa á þessum vettvangi og efla þróun í lagnamálum með bættum vinnubrögðum, vali á lagnaleiðum og lagnaefnum. Síðast en ekki síst er viðurkenningunum ætlað að vera hönnuðum og iðnaðarmönnum hvatning til að afla sér aukinnar menntunar á sviði lagnamála.

Niðurstaða viðurkenningarnefndar Samskipahúsið, sem er stálgrindarhús á þremur hæðum og með stærstu byggingum landsins, varð að þessu sinni fyrir valinu hjá viðurkenningarnefnd Lagnafélags Íslands. Mikil lagnakerfi eru í húsinu og fagmannlegur frágangur bæði lagna og loftstokka einkennir þau að mati viðurkenningarnefndarinnar. "Heildarverk við lagnir í húsakynnum Samskipa eru öll til fyrirmyndar. Aðgengi að öllum tækjum og lögnum er gott, handverk iðnaðarmanna allt til fyrirmyndar. Handbækur lagnakerfa til staðar," segir m.a. í áliti nefndarinnar.

Lofsvert lagnaverk 2

 

 

 

Mest að umfangi í Samskipabyggingunni er slökkviúðakerfið en heildarlengd pípulagna úðakerfisins er álíka og vegalengdin milli Reykjavíkur og Þorlákshafnar, eða um 23 kílómetrar. Hámarks afköst kerfisins eru 9.000 lítrar á mínútu, miðað við 5 kílóa þrýsting á fersentímetra, og myndi það vatnsmagn nægja til að fylla 36 baðkör á einni mínútu!

    Myndatexti:

Forstjóri Samskipa, Ásbjörn Gíslason, ásamt fulltrúum fyrirtækja sem komu að

lagnavinnunni í nýja Samskipahúsinu.

     
Ofnakerfi er í skrifstofum og gólfhiti í hluta þeirra. Gólfhiti er einnig við allar vöruafgreiðsludyr. Heildarlengd pípulagna í byggingunni, að meðtöldum snjóbræðslu- og gólfhitaslöngum, er alls um 65 kílómetrar, eða álíka og vegalengdin á milli Reykjavíkur og Borgarness.

Vörugeymslur eru lítið loftræstar nema tæknirými að sunnan og vestan. Loftræstikerfi er í öllum skrifstofum. Alls þjóna sex loftræstikerfi skrifstofuhlutanum sem er 150 metra langur og sums staðar á þremur hæðum. Kerfin samanstanda af sambyggðum loftræstisamstæðum með varmaendurvinnsluhjólum, nema kerfið fyrir matsal og eldhús. Eftirhitarar eru síðan fyrir einstök svæði.

Heildargólfflötur Samskipahússins er alls um 28.000 fermetrar, grunnflötur er um 18.000 fermetrar og rúmmál hússins alls um 270.000 rúmmetrar. Byggingin er um 250 metra löng og um 70 metra breið. Til að átta sig betur á stærðinni þá gætu tveir knattspyrnuvellir með tilheyrandi áhorfendastúkum vel rúmast þar, svo dæmi sé tekið.

Hefur staðið undir væntingum

Við athöfnina í gær vakti stjórnaformaður Samskipa athygli á því að nýja byggingin væri svo miklu meira en bara hús fyrir félagið. Mikið hefði verið lagt upp úr því að gera vel við starfsfólk og hann væri afskaplega stoltur af því hversu vel hefði til tekist. Húsið væri góður vinnustaður sem svo sannarlega hefði staðið undir væntingum.

Senda grein






Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica