Samskip - Fréttir

Förgun eiturefna lokið

17.10.2005

Förgun er nú lokið á eiturefnum sem láku úr gám sem laskaðist í lest Akrafells, leiguskips Samskipa, þegar skipið hreppti aftakaveður í fyrradag við Skotland, á leið heim frá Hollandi.

Í óveðrinu, sem stóð sleitulaust í tvo daga, fór varningur af stað í lest skipsins með þeim afleiðingum að gat kom á gáminn sem innihélt eiturefnin. Lekinn uppgötvaðist þegar skipið lagðist að bryggju í Reykjavík í gær. Samkvæmt viðbragðsáætlun var slökkviliðinu strax gert viðvart og tók það við stjórn aðgerða. Var unnið að því í nótt og í morgun að losa laskaða gáminn úr skipinu, koma efninu til förgunar og hreinsa svæðið.

Þessa stundina er unnið að losun Akrafellsins og þá kemur í ljós hvort frekari skemmdir hafi orðið á farmi.

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica