Samskip styrkja meistaraflokk Fylkis í handknattleik
Í gær var undirritaður samstarfssamningur milli Samskipa og handknattleiksdeildar Fylkis, en Samskip munu styrkja meistaraflokk Fylkis næstu 3 árin.
Það er félaginu mikill styrkur að fá jafn öflugan bakhjarl og Samskip eru til að standa við bak deildarinnar við að byggja upp meistaraflokk í handknattleik hjá Fylki. Samningurinn mun án efa styrkja stöðu handboltans í Árbænum og auðvelda uppbyggingarstarf deildarinnar til lengri tíma litið.
Á meðfylgjandi myndum má sjá þau Önnu Guðnýju Aradóttur markaðsstjóra Samskipa og Sigurð Jensson formann handknattleiksdeildar Fylkis undirrita og handsala samstarfssamninginn.

