Samskip - Fréttir

Samskip gefa konum frí á Kvennafrídaginn

21.10.2005

Stjórnendur Samskipa hafa ákveðið að gera konum sem starfa hjá félaginu kleift að taka þátt í Kvennafrídeginum, mánudaginn 24. október nk., án þess að laun þeirra skerðist á nokkur hátt.

Fyrirséð er að kvennafríið muni hafa nokkur áhrif á starfsemi Samskipa. Verður t.d. fáliðað í þjónustudeild, afgreiðsla Landflutninga verður lokuð frá kl. 14:00 á mánudag og seinni ferð Herjólfs milli lands og Eyja fellur niður. Einnig skerðist þjónusta í vöruhúsum og á skiptiborði.

Viðskiptavinir Samskipa eru beðnir velvirðingar á hugsanlegum óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér þó svo karlmennirnir hjá félaginu muni reyna að halda uppi eðlilegri þjónustu. Til að auðvelda samskipti við félagið er viðskiptavinum bent á bein símanúmer starfsmanna.

Senda grein






Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica