Samskip - Fréttir
Kvennafrí hjá Samskipum
Klukkan 14.08 í gær gengu konurnar í Samskipum og Jónum Transport fylktu liði á baráttufund á Ingólfstorgi. Búið var að kynna að starfsemin gæti eitthvað farið úr skorðum við brotthvarf svo margra úr vinnunni. Vonast var til að viðskiptavinir væru skilningsríkir á ástandið enda reyndist svo vera. Allir karlmennirnir hjálpuðust svo að og forstjórinn Ásbjörn Gíslason lét ekki sitt eftir liggja og sat á skiptiborðinu um tíma.
Hann sagði að sér hefði gengið nokkuð vel og sér hefði verið vel tekið. Reyndar heyrðist sú saga að ekkert hefði verið hringt eftir klukkan tvö þar sem allir karlarnir í öðrum fyrirtækjum hefðu verið á skiptiborðum sinna fyrirtækja !
Skoðið myndirnar......

Ásbjörn Gíslason - forstjóri Samskipa
tekur sig vel út á símanum.

T.v Jón Þorgrímur Stefánsson og Bjarni
Kristjánsson - kerfisstjórar.
"Samskip góðan dag"

Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa og Kristján Pálsson, framkvæmdastjóri Jóna Transsport. "Senda á þjónustudeild?"

