Samskip - Fréttir
Íslenska fyrir erlent starfsfólk
Fyrsta starfstengda námskeiðinu í íslensku á vegum Samskipa lýkur senn. Ákveðið var að námskeiðið væri skylda fyrir Pólverja sem allir fluttu hingað til lands í ágúst og september. Ellefu starfsmenn Samskipa, tíu Pólverjar og einn Frakki, hafa sótt námskeiðið sem hefur gengið mjög vel og hafa nemendur lýst áhuga á að halda áfram og læra meira. Aðrir starfsmenn Samskipa hafa verið hvattir til að tala íslensku við þátttakendur á námskeiðinu til að þjálfa nemendur sem mest.
Námskeiðið er haldið í samvinnu við MÍMI símenntun og er 50 tíma langt.

