Samskip - Fréttir
Ísheimar

Rúmlega 2.800 tonnum af síld landað inn í Ísheima

22.11.2005

Stórflutningadeild Samskipa hefur staðið í ströngu síðustu daga. Þrjú skip hafa á skömmum tíma landað rúmlega 2.800 tonnum af síld á Vogabakka. Aflanum var landað beint inn í Ísheima, frystivörumiðstöð Samskipa og verður hann geymdur þar, þangað til hann verður fluttur til Eystrasaltslandanna í lok mánaðarins.

Stórflutningadeildin hefur þrjú skip á sínum vegum um þessar mundir og eru tvö þeirra á leið frá landinu til Eystrasalts með frosnar afurðir og eitt að lesta afurðir, einnig til Eystrasalts.

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica