Samskip - Fréttir
Samskip styrkja stöðu sína í fiskflutningum innanlands:
Kynna nýtt og betra fiskflutningakerfi í kjölfar kaupa á fiskdreifingarfyrirtækinu Lífæð
Gengið hefur verið frá kaupum Samskipa á flutningahluta fiskdreifingarfyrirtækisins Lífæðar. Hefur starfsemin verið sameinuð fiskflutningakerfi Landflutninga-Samskipa í nýju og endurbættu kerfi þar sem boðið er upp á samhæfða flutningskeðju, allt frá skipi eða fiskmarkaði og heim að dyrum kaupandans.
"Meginmarkmiðið með kaupunum á Lífæð er að efla Samskip enn frekar sem öflugasta flutnings- og dreifingaraðila á ferskum fiski hérlendis og bjóða íslenskum fiskframleiðendum upp á skjótvirkt og öruggt flutningakerfi," segir Björgvin Jón Bjarnason, framkvæmdastjóri Innanlandssviðs Samskipa.
Lífæð er 10 ára gamalt fyrirtæki sem sérhæft hefur sig í þjónustu við fiskframleiðendur á suðvesturhorni landsins. Bílafloti fyrirtækisins er nýlegur og þar starfar öflugur hópur starfsfólks með áratuga reynslu í fiskdreifingu. Kaupverðið er trúnaðarmál.
Góðar viðtökur fiskkaupenda
Með samhæfðu flutnings- og dreifingarkerfi Landflutninga-Samskipa og Lífæðar verður til öflugasta door-to-door flutninga- og dreifikerfi á fiski sem völ er á hér á landi. Sigurður Örn Arnarson, sem stýrði daglegri starfsemi Lífæðar, verður rekstrarstjóri nýja fiskflutningakerfisins sem kynnt hefur verið fiskkaupendum við góðar undirtektir.
Hráefniskostnaður er langstærsti kostnaðarliður íslenskrar fiskvinnslu. Því skiptir öryggi í flutningum og afhendingu hráefnis sköpum fyrir fiskframleiðendur. Auk skjótvirks og öruggs flutningakerfis hafa Samskip yfir að ráða öflugum hópi starfsfólks með mikla þekkingu á fiskveiðum, -vinnslu og ?flutningum til að sinna þörfum viðskiptavina félagsins.

