Samskip - Fréttir

Lysbox
Lys-box

Bættar siglingar Samskipa milli Noregs og Rotterdam

Geest North Sea Line, dótturfyrirtæki Samskipa, býður nú upp á tíðari gámasiglingar milli Noregs og Rotterdam í kjölfar samstarfssamnings við DFDS Lys Line.

4.1.2006

Frá áramótum munu tvö 750 gámaeininga skip, Lys-Box og Lys-Point, annast siglingar tvisvar í viku milli Rotterdam og fjögurra hafna við Óslóarfjörðinn; Óslóar, Moss, Brevík og Kristiansand, auk þess sem sitt hvort skipið hefur viðkomu einu sinni í viku í Fredrikstad og Larvík. Jafnframt mun annað skipanna hafa viðkomu vikulega í Hamborg, á leið frá Noregi til Rotterdam.

geest_gerarddegroot_bigpicAð sögn Gerard de Groot, framkvæmdastjóra markaðssviðs Geest, hafa flutningar Geest og Samskipa milli Rotterdam og hafna við Óslóarfjörðinn þrefaldast á síðustu tveimur árum.

"Samskip voru með sterka stöðu á þessum markaði og styrkja stöðu sína enn frekar með þessum samningi." Gerard de Groot segist jafnframt sannfærður um að markaður sé fyrir aukna gámaflutninga milli Rotterdam og Noregs. "Með samstarfinu við DFDS Lys Line getum við boðið viðskiptavinum okkar upp á enn betri þjónustu á þessari siglingaleið með tíðari ferðum, meiri sveigjanleika og aukinni áherslu á að uppfylla breytilegar þarfir viðskiptavinanna. Frá Rotterdam getum við boðið upp á flutninga um alla Evrópu, hvort sem er með lestum, fljótaprömmum, vöruflutningabílum eða skipum Geest."

Svokallaðir 45 feta gámar, bæði frystigámar, hefðbundnir gámar og gámar sem hægt er að hlaða og afferma frá hlið, verða notaðir í flutningunum milli Rotterdam og Noregs og segir Gerard de Groot að það skapi visst samkeppnisforskot. "45 feta gámarnir eru fyllilega sambærilegir við hefðbundna vöruflutningabíla í ummáli og bjóða til viðbótar upp á meiri sveigjanleika og lægri flutningskostnað, því það er jöfnum höndum hægt að flytja þá með skipum, járnbrautalestum, fljótaprömmum eða trukkum, allt eftir því hvað er hagkvæmast hverju sinni."

Siglingaleiðir Samskipa/Geest og DFDS Lys Line

Hér fyrir neðan er yfirlit yfir komu- og brottfarartíma á siglingaleiðum Geest milli Rotterdam og Noregs, með viðkomu í Hamborg.


Leið A:

Höfn

Dagur

Komutími

Brottfarartími

Ósló (lestun)

mánudagur

14:00

Moss

mánudagur

17:00

22:00

Fredrikstad

þriðjudagur

07:00

12:00

Brevík

þriðjudagur

16:00

22:00

Kristiansand

miðvikudagur

07:00

12:00

Rotterdam-Maasvlakte

föstudagur

07:00

23:00

Ósló (losun)

sunnudagur

13:00

 

Leið B:

Höfn

Dagur

Komutími

Brottfarartími

Hamborg

mánudagur

07:00

16:00

Rotterdam-ECT Delta

þriðjudagur

15:00

22:00

Rotterdam-Maasvlakte

þriðjudagur/miðvikudagur

 

23:00

 

12:00

Moss

fimmtudagur

18:00

23:00

Ósló

föstudagur

07:00

18:00

Larvík

laugardagur

01:00

06:00

Brevík

laugardagur

10:00

13:00

Kristiansand

laugardagur/

sunnudagur

 

22:00

 

02:00

 



Senda grein






Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica