Nýjar höfuðstöðvar í Rotterdam
Skrifstofur Samskipa og Geest í Rotterdam munu sameinast í nýrri skrifstofubyggingu í byrjun árs 2007. Frystiflutningastarfsemin mun áfram verða á sama stað innan Kloosterboer.
Flutningurinn í nýju bygginguna mun auðvelda samskipti innan fyrirtækisins en mun einnig spila stóran þátt í að sameina starfsfólk og menningu fyrirtækjanna. Höfuðstöðvar erlendrar starfsemi verða í nýju byggingunni.
Nýju skrifstofurnar verða byggðar við Waalhaven O.Z. í svokölluðu "Dock works business port Rotterdam" og verða hluti af fjórum byggingum og verða skrifstofur okkar í allri byggingu nr. 2. Framkvæmdir eru þegar hafnar og eru áætluð verklok í lok árs 2006.
Samræming hönnunar, frágangs, fyrirkomulags og flutninga í nýju skrifstofunar verður í höndum sérstakrar verkefnastjórnar.
Meðfylgjandi eru tölvugerðar myndir af nýju byggingunum.
![]() |
![]() |
![]() |
|
|---|---|---|---|




