Samskip - Fréttir
Afhentu langveikum börnum 150 þúsund krónur
Áhöfn Arnarfells, áætlunarskips Samskipa, afhenti í gær Rjóðrinu, hvíldarheimili fyrir langveik börn, fjárstyrk að upphæð kr. 150 þúsund krónur. Það var Guðrún Ragnarsdóttir frá Rjóðrinu sem tók við peningunum.
Áhöfn skipsins hefur safnað peningum yfir árið og notað til að að hittast og gera sér glaðan dag. Þetta árið reyndist erfitt að koma öllum saman, svo ákveðið var að gefa peningana til þeirra sem þurfa á því að halda og varð Umhyggja fyrir valinu.
Peningarnir voru afhentir í kaffisamsæti til heiðurs þeim Bjarna Geirssyni og Eiríki Eiríkssyni sem láta af störfum hjá Samskipum um þessar mundir eftir áralangt farsælt starf.


