Samskip - Fréttir
Aðkoma að Vörumiðstöð Samskipa við Kjalarvog

Aðkoma að Vörumiðstöð Samskipa við Kjalarvog

24.2.2006

Þann 1. mars verður tekin í notkun aðkomustýring að Vörumiðstöð Samskipa við Kjalarvog.

Aðgangi verður stýrt í gegnum biðraðakerfi, hvort sem um er að ræða vörumóttöku Landflutninga við suðurhlið eða vöruafgreiðslu innflutnings, Vörumiðstöðvar og Jóna Transport við austurhlið. Viðskiptavinur fær úthlutað afgreiðslunúmeri við staur áður en hann ekur upp að afgreiðsludyrum. Ítarlegt ferli að hvorri hlið er að finna í meðfylgjandi bæklingi.

Aðkoma að Vörumiðstöð Samskipa við Kjalarvog

Með bættri aðkomustýringu af þessu tagi næst aukin hagræðing í ferlum vöruhússins. Breytingin mun því auðvelda afgreiðslu hvort heldur sem er í vörumóttöku eða afgreiðslu úr vöruhúsi.



Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica