Samskip - Fréttir
Við unnum !
Ímark, félag markaðsfólks á Íslandi, verðlaunaði nýverið Samskip fyrir boðskortið sem sent var út vegna jólaboðs Samskipa 2005. Fékk boðskortið verðlaun í flokknum markpóstur. Verðlaunin eru Lúður og meðfylgjandi er mynd af hinni stoltu markaðsdeild með verðlaunin.
Boðskortið hannaði auglýsingastofan Argus en það var okkar góði samstarfsaðili Norðlenska sem seldi okkur hangikjötið.
Til hamingju Samskip !

