Samskip - Fréttir

Samskip annast innanlandsflutninga fyrir Húsasmiðjuna

1.3.2006

Samskip hafa undirritað samning um innanlandsflutninga fyrir Húsasmiðjuna. Samningurinn felur í sér að Landflutningar-Samskip sjái um meirihluta aðkeypts innanlandsflutnings fyrir Húsasmiðjuna. Jafnframt felur samningurinn í sér innansvæðisdreifingu á vörusendingum Húsasmiðjunnar frá verslunum á landsbyggðinni auk flutnings á heilförmum eftir þörfum. Samningurinn er til tveggja ára og tekur gildi 1. mars 2006.

Fyrirtækin hafa þróað víðtækt samstarf á síðustu árum þar sem unnið hefur verið markvisst að auknu hagræði í flutningum og á næstu vikum verður rafræn skráning fylgibréfa innleidd á milli fyrirtækjanna. Rafræn fylgibréf munu brátt leysa af hólmi handrituð fylgibréf í innanlandsflutningum en með rafrænni skráningu fylgibréfa næst aukinn sparnaður, bæði á tíma og fjármunum.

Þéttriðið og öflugt flutningakerfi Landflutninga-Samskipa tryggir Húsasmiðjunni og viðskiptavinum hennar um allt land skjóta afhendingu vörusendinga af miðlægum lager í Reykjavík, en verslanirnar eru 18 talsins.  Í flestum tilvikum eru sendingar afhentar innan sólahrings frá móttöku hjá Landflutningum og má því segja að þjónusta verslana Húsasmiðjunnar á landsbyggðinni gefi verslunum á höfuðborgarsvæðinu ekkert eftir.



Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica