Rausnarleg gjöf til uppbyggingar skólastarfs fyrir stríðshrjáð börn í Síerra Leóne
Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa og eiginkona hans Ingibjörg Kristjánsdóttir landslagsarkitekt gáfu á dögunum 36 milljónir króna, rúmlega 500 þúsund dollara, til menntaverkefnis Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF í Afríkuríkinu Síerra Leóne. Gjöfin verður meðal annars nýtt til byggingar á skólahúsnæði og verða 50 skólar reistir í sveitum landsins, fyrir á fimmta þúsund börn á aldrinum 6-9 ára. Auk þess verður gjöfin nýtt til kaupa á skólagögnum, þjálfunar fyrir 100 kennara og uppbyggingar á vatns- og hreinlætisaðstöðu fyrir skólana.
Síerra Leóne er annað á lista Sameinuðu þjóðanna yfir fátækustu lönd í heimi og hvergi í heiminum eru eins slæmar aðstæður fyrir börn. Hlutfall ungbarnadauða er mjög hátt og þjóðin er að jafna sig eftir borgarastyrjöld sem geisaði í landinu í rúma tvo áratugi, en lauk fyrir fjórum árum. Einungis um 42% barna eiga möguleika á því að stunda nám og talið er að um 300 þúsund börn í sveitahéruðum landsins fari á mis við skólagöngu vegna fjarlægðar við grunnskóla í þéttbýlinu. Gjöf Ólafs og Ingibjargar mun því verða nýtt þar sem þörfin er mest.
Ingibjörg og Ólafur hafa bæði unnið ötullega að mannúðarstarfi, Ólafur sem stjórnarmaður í Rauða krossi Íslands og Ingibjörg sem fulltrúi í stjórn UNICEF á Íslandi.
Nánir upplýsingar um menntaverkefni UNICEF og hvernig hægt er að leggja hönd á plóginn er hægt að fá á vef Unicef www.unicef.is

