Samskip opna nýja skrifstofu í Gautaborg
-þriðja skrifstofan í Svíþjóð opnuð í Helsingborg í haust
Samskip opna söluskrifstofu í Gautaborg nú um mánaðamótin til viðbótar við söluskrifstofu félagsins í Varberg, rétt sunnan við Gautaborg. Þá verður þriðja skrifstofa Samskipa í Svíþjóð opnuð í Helsingborg í september.
Gautaborg er miðstöð flutninga til og frá Svíþjóð og stærsta hafnarborgin á Eystrasaltssvæðinu. "Þar sem viðskiptavinirnir eru staðsettir, þar þurfum við að vera," segir Birna Ödefors, framkvæmdastjóri Samskipa í Svíþjóð um staðsetningu nýju skrifstofanna.
Með opnun Gautaborgarskrifstofunnar styrkja Samskip enn frekar stöðu sína á Svíþjóðarmarkaði, bæði í tengslum við Íslands- og Færeyjasiglingar félagsins til og frá Varberg og gáma- og lestarflutninga félagsins innan Evrópu.
"Við erum eftir sem áður með okkar vikulegu siglingar frá Varberg til Árósa og Þórshafnar í Færeyjum og Reykjavíkur," segir Birna Ödefors. ?Þá er það mjög ánægjulegt að geta í Evrópuflutningum okkar orðið við stöðugt vaxandi óskum viðskiptavina okkar um umhverfisvæna flutninga. Það getum við með þeirri fjölþættu flutningsþjónustu sem nú er í boði hjá Samskipum innan Evrópu, hvort heldur sem er með skipum, lestum, fljótaprömmum eða trukkum, allt eftir því hvað er hagstæðast hverju sinni."
Með tilkomu Gautaborgarskrifstofunnar eru skrifstofur Samskipa orðnar 59 talsins í 23 löndum í þremur heimsálfum.
Heimilisfang nýrrar skrifstofu í Gautaborg er:
Samskip AB
Skårs Led 3
412 63 Gothenburg
Sími: +46 31 703 7129
Fax: +46 31 703 7101
Netfang: ulf.aberg@samskip.se

