Samskip - Fréttir
Afhending skipa 2

Öll starfsemin sameinuð undir einu nafni

1.6.2006

Tímamót í útrásarsögu Samskipa:

Öll flutningastarfsemi Samskipa verður sameinuð undir nafni Samskipa í haust. Þetta var tilkynnt í Rotterdam í dag þegar Samskip veittu viðtöku tveimur nýjum kaupskipum sem eru sérsmíðuð fyrir félagið til gámaflutninga í Evrópu. Skipin hlutu nöfnin Samskip Pioneer og Samskip Courier og undirstrika nöfnin enn frekar þá ákvörðun að starfsemi Samskipa erlendis, þ.á.m. rekstur Geest North Sea Line, verði framvegis undir vörumerkinu SAMSKIP.

Það var samgönguráðherra Hollands, frú Karla Peijs, sem gaf Samskip Pioneer nafn en eiginkona borgarstjórans í Rotterdam, frú Opstelten-Dutilh, gaf hinu skipinu nafn við hátíðlega athöfn í innri höfninni í Rotterdam. Gafst gestum síðan tækifæri til að skoða nýju skipin áður en þeim var siglt að athafnasvæði Samskipa á Rotterdam Shortsea Terminal þar sem hafist var handa við að lesta bæði skipin fyrir jómfrúarferðir þeirra.


Sérhönnuð skip til flutninga á 45 feta gámum

Afhending skipa 3Nýju skipin voru smíðuð í Damen skipasmíðastöðinni í Rúmeníu og hafa þá sérstöðu að vera sérstaklega hönnuð til flutninga á 45 feta gámum sem eru æ meir að ryðja sér til rúms í flutningum innan Evrópu en þau geta einnig flutt 20, 30 og 40 feta gáma í lestum og á þilfari.Skipin eru ríflega 140 metra löng og tæpir 22 metrar á breidd og ganghraðinn er allt að 19 sjómílur á klst. Burðargetan er ríflega níu þúsund tonn og er flutningsgeta hvors skips samtals 812 tuttugu feta gámaeiningar (TEU).

Samskip Pioneer og Samskip Courier eru systurskip gámaflutningaskipanna Geestdijk og Geeststroom. Þau voru afhent Geest í fyrra og hafa reynst afburða vel í siglingum milli Hollands og Bretlandseyja. Þá eru tvö skip til viðbótar þessum fjórum nú í smíðum fyrir Samskip í Damen skipasmíðastöðinni og fær félagið þau afhent síðar á árinu.

Gámaflutningakerfi í Evrópu

Eftir ítarlega úttekt hafa stjórnendur Samskipa ákveðið að sameina alla flutningastarfsemi félagsins undir vörumerkinu SAMSKIP og á endurmörkuninni að vera lokið 1. september nk. Þetta er gert til að styrkja enn frekar ímynd félagsins á alþjóðavettvangi, í kjölfar þeirrar umfangsmiklu uppbyggingar sem félagið hefur gengið í gegnum á undanförnum misserum. Jafnframt er lögð áhersla á að rækta áfram þann frumkvöðlaanda sem einkennt hefur starfsemi Samskipa, bæði heima og erlendis.

Áfram er unnið ötullega að útrás Samskipa og er félagið nú leiðandi í gámaflutningum innan Evrópu, eftir kaupin á flutningafyrirtækjunum Van Dieren Maritime, Geest og Seawheel. Hefur sú starfsemi til þessa verið rekin í nafni Geest, sem hefur verið leiðandi í þróun fjölþátta gámaflutningsþjónustu (multi modal) í álfunni. Í hnotskurn felur kerfið í sér margvíslega flutningsmáta á sjó og landi; jafnt með skipum, lestum, fljótaprömmum og trukkum, allt eftir því hvað er hagkvæmast hverju sinni.

Gámafloti Samskipa telur um 13.000 gáma og eru 27 gámaskip í föstum áætlanasiglingum á vegum félagsins milli Íslands, Bretlands, Írlands, Spánar, Skandinavíu, Eystrasaltslandanna, Rússlands og meginlands Evrópu, þar sem Rotterdamhöfn er þungamiðjan í starfsemi félagsins. Skrifstofur Samskipa eru nú 59 talsins í 23 löndum og starfsmenn eru um 1.400.

Afhending skipa 1Hornsteinn lagður að nýjum höfuðstöðvum erlendis

Á gamla hafnarsvæðinu í Rotterdam er verið að reisa nýjar höfuðstöðvar Samskipa erlendis og lagði Michael F. Hassing forstjóri hornstein að nýju byggingunni í hófi starfsmanna Samskipa í dag, að lokinni móttöku nýju skipanna.

Stefnt er að því að flytja í nýju höfuðstöðvarnar í byrjun næsta árs en þær eru hluti af svokölluðu "DockWorks" uppbyggingarverkefni við Waalhaven sem hafnaryfirvöld í Rotterdam og eitt stærsta byggingarfyrirtæki Hollands, OGV, standa að.

Myndatexti: t.v Ásbjörn Gíslason og Michael F. Hassing forstjórar Samskipa og Ólafur Ólafsson, starfandi stjórnarformaður Samskipa.



Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica