Opna tvær skrifstofur í Brasilíu
Samskip hasla sér völl í Suður-Ameríku
Ný kælitækni í gámaflutningum tryggir ferskleika vörunnar
Samskip hafa opnað tvær söluskrifstofur í Suður-Ameríku þar sem megináherslan er lögð á flutningsþjónustu við ávaxta- og grænmetisframleiðendur þar sem beitt er nýrri geymslutækni í gámaflutningum sem tryggir bæði gæði- og ferskleika vörunnar. Stefnt er að því að opna fleiri skrifstofur í álfunni á næstunni.
Nýju skrifstofurnar eru báðar staðsettar í Brasilíu, í borgunum Salvador og Petrolina. Skrifstofan í Salvador mun sinna hinum ört stækkandi ávaxta- og grænmetismarkaði innan álfunnar ? þar sem boðið er upp á kæli- og frystiflutningaþjónustu frá dyrum seljanda að dyrum kaupanda ? á meðan skrifstofan í Petrolina mun einbeita sér að hitastýrðum gámaflutningum milli heimsálfa á viðkvæmum suðrænum ávöxtum og grænmeti, þar sem beitt er nýrri tækni til að tryggja ferskleika vörunnar. Í tengslum við Petrolina skrifstofuna var kæligeymslu einnig komið þar á laggirnar.
"Brasilía er með stærstu mörkuðum heimsins í hitastýrðum flutningum og opnun skrifstofanna þar er enn eitt skrefið í þeirri viðleitni Samskipa að bjóða upp á fyrsta flokks kæli- og frystiflutningaþjónustu um allan heim," segir Einar Þór Guðjónsson, framkvæmdastjóri frysti- og kæliflutningasviðs Samskipa.
Starfsmenn Samskipa í Brasilíu eru 10 talsins til að byrja með. Brasilíumaðurinn Jeferson Boschetti, sérfræðingur í frystiflutningum, stjórnar starfsemi Samskipa í Brasilíu og er hann staðsettur í Salvador. Fjórir starfsmenn til viðbótar eru á skrifstofunni þar, undir daglegri stjórn brasilíumannsins Franscisco Gugé. Fimm starfsmenn eru einnig á Petrolina skrifstofunni þar sem Rolf Dunkelmann er yfirmaður.
Loftskiptir kæligámar
Það er svokölluð DCA-tækni, Dynamically Controlled Atmosphere, sem tryggir að nú er hægt að bjóða upp á sjóflutninga á viðkvæmum matvælum án þess að þau tapi ferskleika. Með því að skipta út súrefni með köfnunarefni og nákvæmri hitastýringu er öll gerjun matvælanna stöðvuð og þannig tryggt að ferskleiki vörunnar er hinn sami við losun gámanna og lestun.
Með tilkomu DCA-tækninnar eru sjóflutningar á ferskum ávöxtum og grænmeti vel samkeppnisfærir við flugfrakt, auk þess sem sá kostur fylgir gámaflutningunum að ekkert þarf að hrófla við farminum, allt frá því að gámur fer frá seljandanum og þar til honum er skilað að dyrum kaupandans. Þannig rofnar kælikeðjan ekki og líkurnar á skemmdum eru í lágmarki.
Heimilisföng skrifstofa Samskipa í Brasilíu:
|
Samskip Salvador Ltda.
Av.Centenario 2883 Salas 320/303 Edificio Victoria Center Chame-Chame. CEP 40.155-150 Salvador - Bahia Brazil Sími: 55 71 3332 1940 Fax: 55 71 3332 8454 Francisco Gugé (fguge@samskip.com) Jeferson Boschetti (jeferson.boschetti@samskip.com)
|
Samskip Petrolina Ltda.
Lote 593, Núcleo 02 Projeto Senador Nilo Coelho Caixa Postal 156 Petrolina, Pernambuco 56302-970 Brazil Sími: +55 (87) 3986-1564 Fax: +55 (87) 2986-1518 Rolf Dunkelmann (rdunkelmann@samskip.com) Ralf Schönbohm, (ralf.schoenbohm@samskip.com) |

