Samskip - Fréttir
Queen Elizabeth önnur komin til Reykjavíkur
Snemma í morgun kom Queen Elizabeth önnur til Reykjavíkur og lagði að Skarfabakka. Þetta er í fyrsta skipti se m svo stórt skip leggst að bryggju hér á Íslandi en skipið er 70.327 brúttótonn og 294 metra langt. Farþegarnir eru 1.735 talsins og áhöfnin 1.019 manns. Skipið er að koma frá Southampton í Bretlandi, sem er heimahöfn skipsins. Frá Reykjavík fer skipið til Akureyrar og þaðan áfram til Flaam í Noregi.
Stórflutningadeild Samskipa sér um þjónustu við skipið við komuna hingað til lands. Í sumar munu 20 skip koma til landsins á vegum Samskipa og verða viðkomurnar alls 84 um allt land. Áfangastaðirnir eru Reykjavík, Akureyri, Ísafjörður, Grundarfjörður, Seyðisfjörður, Vestmannaeyjar og Keflavík.

